Kjúklingur Saltimbocca

Kjúklingur Saltimbocca er Ítalskur réttur og nafnið þýðir
eiginlega „Stekkur upp í munninn“ og vísar til þess hve ljúffengur rétturinn
er.  Í upprunalegu uppskriftinni er kálfakjöt notað en oft er kálfakjötinu
skipt út fyrir kjúkling. Þessi réttur samanstendur af þunnum kjúklingabringum,
hráskinku og salvíublöðum. Þetta er réttur sem á eftir að koma ykkur á óvart.
Hann er mjög einfaldur en mamma mía hvað hann er góður.
Sannkallaður
sælkeraréttur sem þið ættuð að prófa.
Rétturinn er borinn fram með kartöflumús og ljúffengri hvítvínssósu. Njótið vel!

Kjúklingur Saltimbocca.

  •     Fjórar kjúklingabringur
  •     8 hráskinkusneiðar
  •     10 – 12 fersk salvíublöð
  •     Salt og nýmalaður pipar
  •     1 – 2 msk. Ólífuolía

 

Aðferð:
  1. Skerið kjúklingabringur í tvennt og kryddið með salti og pipar.
  2. Leggið eitt salvíublað ofan á kjúklingabringuna og
    vefjið hráskinkunni utan um hvern bita.
  3. Hitið ólífuolíu á pönnu og steikið bringurnar í smá stund á hvorri hlið eða þar til þær eru brúnaðar á öllum hliðum.
  4. Leggið bringurnar því næst í eldfast mót og inn í ofn við 180°C i 20 mínútur. Á meðan kjúklingurinn er í ofninum útbúið þið sósuna og kartöflumús.

Kartöflumús með parmesan osti

  •      500 g soðnar kartöflur
  •      30 g smjör
  •      1 dl mjólk
  •      Salt og nýmalaður pipar
  •      1 dl rifinn parmesan ostur
Aðferð:
  1. Afhýðið kartöflurnar og bræðið smjörið.
  2. Setjið kartöflurnar út í smjörið og takið pottinn af hitanum, stappið kartöflurnar vel
    saman við smjörið og hellið volgri mjólk út í smáum skömmtum.
  3. Bætið ostinum við og stappið öllu vel saman þar til réttri áferð er náð, það er smekksatriði hvað
    þið notið mikla mjólk en þið finnið það um leið ef þið þurfið að bæta við mjólk.
  4. Bragðbætið með salti og pipar.

Hvítvínssósa

  • 2 msk. Smjör
  • 6 – 7  fersk salvíublöð, smátt skorin
  • 700 ml hvítvín
  • 1 stk. Kjúklingakraftur
  • Nýmalaður pipar
Aðferð:
  1. Bræðið smjörið á pönnu og steikið salvíublöðin.
  2. Hellið hvítvíninu út á og bætið kjúklingakraftinum saman við. Kryddið til með
    pipar.
  3. Leyfið sósunni að sjóða í smá stund, lækkið þá hitann og leyfið sósunni að malla í nokkrar mínútur eða þar
    til kjúklingurinn er tilbúinn.

 

Njótið vel
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *