Ítalskur vanillubúðingur með ástaraldinsósu.

Vanillubúðingur eða
Pannacotta kemur frá Ítalíu. Hægt er að bera eftirréttinn fram allan ársins
hring en ástaraldinsósan gerir þennan rétt einstaklega sumarlegan og
ljúffengan.
500 ml rjómi

100 g
hvítt súkkulaði
2 msk
vanillusykur

1 tsk vanilluduft eða vanillukorn úr vanillustöng
2 plötur
matarlím

Aðferð: 
1. ) Leggið
matarlímsblöð í kalt vatn í 4 – 6 mínútur.  
2.) Á meðan hitið þið rjóma að suðu og
bætið súkkulaði saman og bræðið í rólegheitum. 
3.) Hrærið í á meðan og þegar
súkkulaðið er bráðnað bætið þið vanillusykri og vanilludufti saman við,  í
lokin kreistið þið vökvann frá matarlímsblöðum og hrærið út í vanillublönduna. 
4.) Hellið í skálar og geymið í kæli að minnsta kosti í tvær til þrjár klukkustundir,
best yfir nótt. 

Ástaraldinsósa
3 dl
appelsínusafi

3 dl sykur
5 ástaraldin


Aðferð

1.) Sjóðið
appelsínusafa og sykur saman við vægan hita. 
2.) Bragðbætið sósuna með ástaraldin
og hrærið þar til þið eruð sátt með þykktina á sósunni.  
3.) Það er mikilvægt
að kæla sósuna vel áður en þið ætlið að bera hana fram og er hún ljúffeng með
vanillubúðingnum. 
Berið fram og njótið 
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *