Grænmetis-lasagne

 Ég er ansi mikið fyrir lasagne, gaman hvað það er hægt að útbúa það á marga vegu. Í kvöld þá lagaði ég mér grænmetis-lasagne í fyrsta sinn. Það lukkaðist vel að mínu mati og gat ég smjattað út í eitt. 
Einfalt, fljótlegt, hollt, gómsætt og ódýrt. Erum við ekki annars öll að leitast eftir því?

 1 Lítill brokkólhaus
1 Kúrbítur
1 Rauðlaukur
1 Sellerístöng
4 Litlar gulrætur
1 Lítil sæt kartafla
1 Rauð paprika
10 Kirsuberjatómatar
4-5 Sveppir
Handfylli af ferskri basilikku
Handfylli af ferskri steinselju
1 Dós saxaðir  tómatar
1/4 Krukka af mildri salsa sósu
5-6 msk. Kotasæla
Allt grænmetið steikt á pönnu í smá stund, bæti síðan saman við á pönnuna söxuðum tómötum og salsasósunni. Setti eitt glas af vatni saman við, pipar og salt er líka nauðsyn. 
Lét þetta malla við vægan hita í um það bil fimm mínútur.
Svo er þessu raðað upp í form – grænmeti – græn lasagneblöð- grænmeti- græn lasagneblöð – grænmeti – nokkrar msk. af kotasælu og fersku kryddjurtirnar- hvít lasagneblöð – grænmeti – nokkrir fetaostbitar ofan á.
40-45 mín við 180°C.

Endilega deildu með vinum :)

2 comments

Leave a Reply to Heiðdís Fjóla - Cancel Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *