Grænn ofursafi
*ca. 3 – 4 glös
- ca. 150 g spínat eða grænkál
- 1 agúrka
- 1 sítróna
- 1 grænt epli
- 3 stilkar sellerí
- 3 – 4 cm engifer
- Ískalt vatn
Aðferð:
- Skerið hráefnið smátt og skellið öllu í blandara.
- Hálffyllið blandarann með ísköldu vatni og blandið öllu mjög vel saman!
- Ég sía safann í gegnum sigti en þess þarf auðvitað ekki.
- Hann geymist vel í ísskáp í 1 – 2 daga! (jafnvel lengur en ég hef ekki enn reynt á það)
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups