Hollt dipp og súkkulaðihjúpuð jarðaber.

Gott dipp og súkkulaðihjúpuð jarðaber. Fátt um betra!

Uppskrift af ótrúlega góðu dippi.
1x stór kotasæludós
1x mild salsasósa
1x rauð paprika
1x græn paprika
3/4 af ágúrku
2x tómatar
1x rauður laukur
That’s it!
Kotasælan neðst – salsasósan yfir – og svo grænmetið ofaná, fallegir litir og ljúffengt með hrökkbrauði eða snakki svona þegar að maður vill gera vel við sig :o)

Súkkulaðihjúpuð jarðaber er þokkalega góð – svo gott að hafa eitthvað ferskt með súkkulaðinu.
Ég valdi mér gott súkkulaði – siríus auðvitað! Bræddi súkkulaðið yfir vatnsbaði og klæddi svo jarðaberin í súkkulaðiklæðin.
Góða helgi allir saman, gerið eitthvað skemmtilegt! Ég ætla allavega að hafa það huggó með yndislegum vinkonum í kvöld og í fyrramálið fer ég í reynsluflug númer tvö til Frankfurt. Þannig þetta stefnir allt í sérdeilis fína helgi :o)

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *