Gómsætir ostaréttir sem kitla bragðlaukana

Í síðasta þætti af Matargleði Evu heimsótti ég mygluostabú MS í Búðardal og fékk að fylgjast með ostaframleiðslunni. Hér eru tveir ostaréttir sem eru ofboðslega góðir og ég fæ ekki nóg af. Ofnbakaðir ostar eru hreint afbragð og ostasalatið er fullkomið á veisluborðið. 
Gómsætir ostaréttir sem ég mæli með að þið prófið. 
Ofnbakaður Stóri Dímon
1 Stóri Dímon
2 msk ólífuolía
1 hvítlauksrif, marið 
1 msk smátt saxað rósmarín
Aðferð: 
Blandið olíu, hvítlauk, rósmaríni og ögn af salti saman í skál. Stingið hníf í ostinn og snúið aðeins upp á hnífinn, hellið blöndunni yfir ostinn. Bakið við 180°C í 8 – 10 mínútur eða þar til osturinn er orðinn gylltur. 
Gott að vita! Það er hægt að baka ostinn í öskjunni sem hann kemur í. Það getur samt komið fyrir að askjan sem osturinn kemur í brotni í ofninum en þá er ágætt að setja öskjuna ofan í eldfast mót en þannig tryggjum við að osturinn haldi sér á sínum stað. 
Ostasalatið sem slær alltaf í gegn 
1 Mexíkóostur
1 Hvítlauksostur
1 dós sýrður rjómi
1 dós Grískt jógúrt 
1/4 púrrulaukur, smátt saxaður 
1 rauð paprika, smátt skorin
rauð vínber, skorin í tvennt 
Aðferð:
Skerið púrrulauk eftir endilöngu, skolið og skerið síðan í litla bita. Skerið paprikuna einnig mjög smátt og vínberin í tvennt. Blandið sýrða rjómanum og gríska jógúrti saman við og bætið ostinum saman við í lokin, mér finnst best að skera hann fremur smátt. Blandið öllu vel saman og berið fram með góðu brauði eða kexi. Salatið er betra ef það fær að vera í kæli í klukkustund áður en það er borið fram. 

Njótið vel. 
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *