Frönsk lauksúpa

Frönsk lauksúpa 
Galdurinn við góða lauksúpu er að leyfa lauknum að krauma í smjörinu í dágóðan tíma. Hér er uppskrift að bragðmikilli lauksúpu sem Eva Laufey eldaði í þætti sínum, Matargleði. 
400 g laukur
70 g smjör
1 msk hveiti
1 l kjúklingasoð
3 dl hvítvín
4 tímían greinar
3 lárviðarlauf
steinselja, magn eftir smekk
salt og nýmalaður pipar
baguette 
rifinn ostur 
Aðferð
  • Afhýðið lauk og skerið í þunnar
    sneiðar.
  • Steikið laukinn upp úr smjörinu, því
    lengur sem þið steikið laukinn því betri verður súpan. Hann á þó alls ekki að
    brenna heldur verða glær og gullinbrúnn.
  • Stráið hveitinu yfir laukinn og
    hrærið í.
  • Hellið soðinu og hvítvíninu saman
    við og látið sjóða saman.
  • Bætið kryddjurtum út í og leyfið henni að malla í 30 mínútur – 50 mínútur.
  • Hellið súpunni í skálar sem þola að
    fara inn í ofn, setjið eina brauðsneið ofan í hverja skál og stráið osti yfir.
    Bakið í ofni í nokkrar mínútur eða þar til osturinn er bakaður.

Berið súpuna strax fram og njótið

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *