Chilikjötbollur með spaghettí og sósu.

Kjötbollur með spaghettí og sósu. 

500 gr. Nautahakk
1 dl. Brauðmylsna
½ Laukur, smátt niðurskorinn
½ Rautt chili, smátt niðurskorinn
3 Hvítlauksrif, marin
3 msk. Fersk steinselja, söxuð.
1 msk. Fersk basilika, söxuð
1 msk. Rifinn parmesan ostur
1 msk. Ólífuolía
1 Egg
Salt og grófmalaður pipar
Kryddið nautahakkið með salt og pipar, bætið brauðmylsnu,
basilikku, steinselja, lauk, hvítlauk, parmesan, chili olíu og eggi saman við, blandið
mjög vel saman og mótið litlar bollur. Steikið í um tíu mínútur við
miðlungshita upp úr olíu á stórri pönnu. Mikilvægt að snúa bollunum reglulega
við svo þær steikist jafnt. Ég lét þær sömuleiðis inn í ofn við 180°C í fimm
mínútur.
Berið fram með speghettíi, sósunni og rifnum parmesan. 
Ljúffeng og einföld pastasósa.

1 msk. Olífuolía
1 laukur, smátt skorinn
4 hvítlauksrif, marin
4 msk. Basilika, söxuð
2 dósir niðursoðnir tómatar
1 dl. Vatn
½ kjúklingateningur
1 msk. Rifinn parmesan ostur
Salt og pipar
Mýkið lauk og hvítlauk í olíu á pönnu við vægan hita, bætið
niðursoðnum tómötum saman við og vatninu. Látið malla í nokkrar mínútur, bætið
síðan kjúklingateningnum, salti og pipar saman við. Að lokum fer söxuð basilika
og parmesan ostur saman við  og látið
malla í smá stund í viðbót. Smakkið ykkur til, það virkar oftast best. Kannski
viljið þið meiri pipar eða meiri basiliku! Þið finnið það. Ótrúlega einföld og
góð sósa.

Við vorum mörg í mat hjá mömmu í gær svo ég þrefaldaði uppskriftina. 
Allir voru sáttir og sælir eftir matinn. 
Það besta er að það var afgangur svo ég get fengið mér þessar dásamlegu kjötbollur núna í hádegismat. 
Ég mæli hiklaust með því að þið prufið þessa uppskrift. 
Ég vona að þið eigið ljúfan dag. 
xxx
Eva Laufey Kjaran

Endilega deildu með vinum :)