Bollakökunámskeið á Akranesi

Á mánudaginn held ég mitt fyrsta bollakökunámskeið á
Akranesi. Ég er með smá stresshnút í maganum en mikið sem ég hlakka til. Þetta
verður að ég held ótrúlega skemmtilegt. Það eru enn nokkur laus pláss laus svo
ef þið hafið áhuga á því að koma þá endilega sendið mér póst á netfangið evalaufeykjaran@gmail.com


Ég fékk þessa hugmynd að halda einfalt bollakökunámskeið
vegna þess að ég hef fengið margar fyrirspurnir hvað varðar krem og
skreytingar. Bollakökur eru í miklu eftirlæti hjá mér, þær bjóða upp á svo
marga möguleika. Það er tilvalið að bjóða upp á bollakökur í veislum. Bollakökur
eru einfaldar en eru algjört augnyndi og ferlega ljúffengar, passlegur kökubiti
sem á alltaf vel við.
Á námskeiðinu verður kennt að baka ljúffengar bollakökur fra
grunni, gerðar nokkrar tegundir af kremum og að lokum kennsla í skreytingum.
Hver og einn bakar sínar bollakökur, skreytir þær og tekur afraksturinn með
heim. 
Einnig hef ég fengið fyrirspurnir um brúðartertuna sem ég bakaði handa
systur minni og hvernig ég skreytti hana svo ég ætla að sýna hvernig við
skreytum heila köku með rósamynstri.
Ég hlakka til að eyða baksturskvöldi með flottu
fólki.
 Ekki hika við að hafa samband ef þið hafið áhuga á því að koma á þetta
námskeið kæru vinir.
xxx
Eva Laufey Kjaran

Endilega deildu með vinum :)

1 comment

  • Væri æðislegt ef þú myndir halda svona námskeið í bænum, ég er búin að vera að leita mér að kökuskreytingarnámskeið en finn engin nema það sé þá í sykurmassa.

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *