Tandoori kjúklingur
- 700-800 g kjúklingakjöt, helst læri
- 2 hvítlauksrif
- 4 cm engifer, ferskt
- 200 g ab mjólk
- 1 tsk paprika
- 1 tsk garam masala
- 1 tsk salt
- ½ tsk pipar
- 1 tsk kóríander
- 1 tsk túrmerik
Aðferð:
- Rífið niður engifer og hvítlauk í skál, hellið ólífuolíunni saman við og hrærið vel.
- Bætið kryddunum saman við og hrærið. Því næst fer ab mjólkin eða hreint jógúrt út í og öllu blandað vel saman.
- Skerið rákir í kjúklingakjötið áður en þið setjið kjötið út í marineringuna.
- Setjið plastfilmu yfir skálina og geymið í ísskáp í nokkrar klukkustundir, best yfir nótt.
- Hitið grillpönnu eða útigrillið, takið kjúklingakjötið úr marineringunni og grillið á mjög heitri pönnu eða grilli í 5-7 mínútur á hvorri hlið eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.
- Saxið niður ferskan kóríander og sáldrið yfir kjúklinginn áður en hann er borinn fram.
Naan brauð
- 150 ml volgt vatn
- 200 g hveiti
- 2 tsk þurrger
- 1 tsk hunang
- 1 tsk salt
- 3 msk ab mjólk
- 1 msk ólífuolía
- 1msk brætt smjör
- 1 msk ólífuolía
- 1 hvítlauksrif
- ½ tsk salt
- 1 tsk smátt söxuð steinselja
Aðferð:
- Blandið vatni, geri og hunangi saman í skál. Leggið viskastykki standa yfir skálina og um leið og það byrjar að freyða í skálinni er gerið tilbúið.
- Bætið því næst hveitinu, saltinu, ab mjólkinni og ólífuolíunni saman við og hrærið vel saman. Stráið smá hveiti á borð og hnoðið þar til deigið verður samfellt og fínt, leyfið deiginu að hefast í klukkustund.
- Skerið deigið í litla bita og mótið kökur, þær eiga að vera fremur þunnar.
- Steikið á heitri pönnu á hvorri hlið í 1-2 mínútur.
- Blandið saman í skál, smjöri, olíu, salti, steinselju og hvítlauk og penslið á naan brauðin þegar þau eru nýsteikt. Það gefur þeim dásamlegan hvítlaukskeim! Má auðvitað sleppa því ef þið eruð ekki hrifin af hvítlauk.
Raita sósa
- 250 g ab mjólk
- ½ agúrka
- Salt og pipar
- 2 msk smátt saxður kóríander
Aðferð:
Saxið hráefnin afar smátt og blandið öllu vel saman í skál, geymið helst í kæli í smá stund áður en þið berið sósuna fram.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.