*Þessi færsla er kostuð og unnin í samstarfi við KELLOGGS
Syndsamlega gott og einfalt eplapæ
- 4 epli
- 1 tsk kanil
- 4 msk smjör
- 1 tsk vanilludropar
- 5 dl KELLOGGS múslí með súkkulaðibitum
- 2 dl grískt jógúrt
- 1 msk hunang
- 1 vanillustöng
- ½ tsk vanilludropar
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180°C.
- Flysjið epli, fjarlægið kjarna og stilka.
- Skerið eplin í litla bita og veltið upp úr kanil. Setjið eplin í eldfast mót, hellið vanilludropum yfir og skerið smjörið í bita og dreifið yfir.
- Að lokum fer KELLOGGS múslí með súkkulaðibitum yfir og inn í ofn við 180°C í 25 – 30 mínútur eða þar til pæið er orðið gullinbrúnt (best er að hræra í pæinu einu sinni til tvisvar á meðan það er í ofninum).
- Blandið grísku jógúrti, hunangi, fræjum úr vanillustöng og vanillu saman í skál og berið fram með eplapæinu.
Njótið vel og með góðri samvisku!
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir