Oreo bomba!

Í fyrsta þætti af Matarboði með Evu fékk ég vinkonu mína og hæfileikabúntið Evu Ruzu til þess að elda með mér og hún gerði meðal annars þennan Oreo eftirrétt sem margir hafa spurt um og hér er uppskriftin og þessi eftirréttur er súper einfaldur og góður. Ég bætti hvítu súkkulaði saman svona fyrst það eru páskar en það má sleppa því, en hver gerir svoleiðis? Það sleppir enginn súkkulaði

Oreo ostakökueftirréttur

Miðast við 4-6 manns.

Hráefni

  • 500 ml rjómi
  • 600 g rjómaostur
  • 2 msk vanillusykur
  • 4 msk flórsykur
  • 100 g hvítt súkkulaði
  • 300 g Oreo kexkökur

Aðferð:

  1. Þeytið rjóma og vanillusykur. Setjið rjómann til hliðar í aðra skál.
  2. Þeytið rjómaost og flórsykur saman. Bræðið hvítt súkkulaði yfir vatnsbaði og hellið því í mjórri bunu saman við rjómaostinn.
  3. Blandið rjómanum saman við með sleikju.
  4. Myljið Oreo kexkökurnar í matvinnsluvél eða setjið þær í poka og myljið þær með til dæmis kökukefli.
  5. Setjið eftirréttinn saman, þið getið bæði notað eina stóra skál eða nokkrar litlar.
  6. Byrjið á því að setja Oreo mulning í botninn og síðan ostakökufyllingu, endurtakið leikinn þar til þið eruð komin með nokkur lög. Skreytið gjarnan með ferskum berjum til dæmis jarðarberjum.
  7. Geymið eftirréttinn í kæli í lágmark þrjár klukkustundir og það er frábært að gera réttinn degi áður en þið ætlið að bera hann fram og leyfa honum að vera í kæli yfir nótt.

Njótið vel.


Aðferðin og skref fyrir skref myndir má finna á Instagram – finnið mig undir evalaufeykjaran

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *