Það hefur tíðkast á Íslandi í yfir hundrað ár að borða bollur á bolludaginn og frá því að ég var lítil þá hefur þessi dagur verið í algjöru uppáhaldi. Ég veit fátt betra en vatnsdeigsbollu með sultu og rjóma, eða annarri góðri fyllingu. Þegar ég var yngri var mikið sport að fá bollu með bleikum og dísætum rjóma, mamma bakaði alltaf heil ósköp af bollum og svo voru alltaf fiskibollur um kvöldið og rjómabollur í desert. Svo vorum við að sjálfsögðu með bolluvendi en ég hef ekki föndra mér slíkan undanfarin ár, ég hlakka til þegar Ingibjörg Rósa smakkar sína fyrstu bollu. Það verður auðvitað ekki nú í ár en kannski á næsta ári, ég er kannski eina móðirin sem hlakka til að bjóða barninu mínu rjómalagað bakkelsi en það má nú heldur betur skapa skemmtilegar minningar og það er allt gott í hófi, það er reglan okkar. Ég tók forskot á sæluna og bakaði nokkrar bollur, það þarf alltaf að æfa sig fyrir stóra daginn. Ég gerði hefðbundnar vatnsdeigsbollur bæði með glúteini og án glúteins. Þið finnið uppskrift að glútenfríum bollum hér.
Það er lítill vandi að búa til sínar eigin bollur og það er gaman að prófa allskonar fyllingar þó vissulega sé bolla með sultu og rjóma alltaf góð þá getur verið ágætt að breyta til. Ég mæli með að þið margfaldið ekki uppskriftina því það er hætta á að hlutföllin riðlist, mér finnst best að laga eina uppskrift í einu.
Hér er uppskrift að vatnsdeigsbollum og þremur ljúffengum fyllingum.
-
100 g smjör
-
2 dl vatn
-
2 msk sykur (má sleppa)
-
110 g hveiti
-
3 stór egg
-
Hitið ofninn í 200°C. (blástur)
-
Hitið vatn, smjör og sykur saman í potti og látið suðuna koma upp. (gott er að láta vatn, sykur og smjör sjóða vel saman í 2 – 3 mínútur áður en hveitið er sett út í.
-
Setjið hveiti út í, hrærið saman og látið kólna í 4 mínútur.
-
Takið pottinn af hitanum og setjið eggin út í eitt í einu, sláið vel saman á milli. Það er líka ágætt að setja deigið í hrærivélaskál og hræra þannig saman.
-
Setjið í sprautupoka og sprautið bollunum á pappírsklædda bökunarplötu en það má auðvitað gera það líka með tveimur skeiðum.
-
Bakið bollurnar í 25 – 30 mínútur, það er mikilvægt að opna ekki ofninn fyrstu 15 mínúturnar af bökunartímanum því þá er hæta á að bollurnar falli.
- 1 askja jarðarber (10 – 12 stk)
- 4 dl rjómi
- 2 tsk. flórsykur
-
Maukið jarðarberin með töfrasprota eða með gaffli.
-
Þeytið rjóma og sigtið flórsykur saman við í lokin
-
Blandið jarðarberjamaukinu varlega saman við rjómablönduna með sleif.
-
4 dl rjómi
-
1 banani
-
3 msk. Nutella
- Þeytið rjóma.
- Maukið banana og Nutella saman með töfrasprota eða stappið vel saman með gaffli.
- Blandið bananablöndunna varlega saman við rjómann með sleif.
- 4 dl rjómi
-
3 msk. karamellusósa (sjá uppskrift hér)1 – 2 dl. karamellukurl
- Aðferð:
-
Þeytið rjóma.
-
Blandið karamellusósu saman við rjómann með sleif, prófið að gera ykkar eigin karamellusósu. Það er miklu einfaldara en ykkur grunar. Hér er góð uppskrift. Passið að hún sé köld þegar þið blandið henni saman við rjómann.
-
Í lokin blandið þið karamellukurli saman við rjómablönduna.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í Hagkaup.