Klístruð og ómótstæðileg rif
Svínarif
- 1 tsk Bezt á allt
kryddblanda - 1 tsk paprika
- 1 tsk cumin krydd
- 1 tsk kanill
- 1 dl Hoisin sósa
- 1 dl Soya sósa
- 1 msk hunang
- Salt og pipar
- ½ rautt chili
- 1 stilkur vorlaukur
- 1 hvítlauksrif
- 1 msk fersk nýrifið
engifer - 1 dl púðursykur
Aðferð:
- Saxið chili
og vorlauk, blandið öllum hráefnum saman í skál og leggið svínarif í form. - Hellið sósunni yfir og geymið í kæli. Best er að leyfa kjötinu að liggja í
sósunni í nokkrar klukkustundir. - Pakkið kjötinu inn í álpappír og bakið við
110°C í 2,5-3 klukkustundir. Eftir þann tíma stillið þið ofninn á grillhita og
opnið álpappírinn, steikið kjötið á þeim hita í 10-15 mínútur. - Dreifið ristuðum
sesamfræin yfir kjötið áður en þið berið það fram.
Ferskt hrásalat
- ½ höfuð rauðkál
- ½ höfuð hvítkál
- ½ rautt chili aldin
- 2 stilkar vorlaukur
- Safi úr hálfri
límónu - Safi úr hálfri
appelsínu - Handfylli kóríander
- Salt
Aðferð:
- Skerið grænmetið
smátt og blandið saman í skál. - Kreistið safann úr límónu og appelsínu yfir
salatið og kryddið til með salti og pipar. Gott er að leyfa salatinu að standa
í hálftíma í kæli áður en þið berið það fram.
Njótið vel.
Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld á Stöð 2.
Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.