Það er ótrúlega lítið mál að útbúa heimatilbúna hamborgara og þeir smakkast miklu betur en þeir sem eru keyptir út í búð. Þegar sólin skín er tilvalið að dusta rykið af grillinu og grilla góðan mat, helst í góðra vina hópi. Ég grillaði þennan ómótstæðilega hamborgara um daginn og svei mér þá ef hann er ekki bara kominn í uppáhald, svo góður er hann. Ég mæli með að þið prófið núna um helgina.
Grillaðir hamborgarar með beikon- og piparosti.
600 g
nautahakk
nautahakk
olía
rauðlaukur
1 dl
smátt skorið stökkt beikon
smátt skorið stökkt beikon
2 msk
dijon sinnep
dijon sinnep
2 msk
söxuð steinselja
söxuð steinselja
1 egg
brauðrasp
2 dl
rifinn piparostur
rifinn piparostur
salt og
pipar
pipar
hvítmygluostur
Aðferð:
- Hitið olíu á pönnu, skerið rauðlaukinn í sneiðar og
steikið upp úr olíunni í nokkrar mínútur eða þar til hann er mjúkur í gegn. - Blandið öllum hráefnum saman í skál fyrir utan
hvítmygluostinn. Brauðrasp eða hveiti bindur deigið betur saman en notið eins
mikið og þið ykkur finnst þið þurfa af því. Best er að nota hendurnar til
verksins! - Mótið fjóra til fimm hamborgara, ég keypti mér ágæta
hamborgarapressu frá Weber í Hagkaup um daginn og mér finnst hún alveg frábær.
Kostar tæplega 2000 kr. Kjarakaup! - Grillið hamborgarana í þrjár mínútur á lokuðu
grilli, snúið þeim við og bætið hvítmygluosti að eigin vali ofan á og grillið
áfram í 4 – 6 mínútur. - Það er gott að setja hamborgarabrauðin á grillið rétt
í lokin. - Berið borgarann fram með majónesi, dijon sinnepi,
káli, tómat og gjarnan enn meiri rauðlauk. Ég var einnig með sætar
kartöflufranskar, en ég skar niður nokkrar sætar kartöflur í lengjur. Velti
þeim upp úr olíu og kryddaði til með salti, pipar og paprikukryddi. Bakaði við
180°C í 35 – 40 mínútur.Það er alltaf líf og fjör í upptökum. Hér er búið að klemma mig í bak og fyrir á meðan ég stilli matnum upp fyrir myndatöku. Allt eins og það á að vera.Ég vona að þið eigið góða helgi framundan.xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.