Ég er svo ótrúlega rík að hafa átt tvo pabba í mínu lífi. Þann fjórða júní kvaddi þessi einstaki maður þennan heim, alltof snemma. Fjörið var rétt að byrja hjá okkur. Ég er svo þakklát fyrir þann tíma sem við áttum saman sem var einstaklega ljúfur. Minningarnar um yndislegan mann sem ég á eftir að sakna óskaplega mikið lifa að eilífu.
Mig langar svo að þakka ykkur vinum mínum og lesendum fyrir fallegar kveðjur. Ég met þess mikils og kveðjurnar ylja svo sannarlega hjartað.
Risaknús tilbaka á ykkur öll.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir