Það er alltaf staður og stund fyrir gómsæta og stökka kjúklingavængi! Það eru eflaust margir að skipuleggja útskriftarveislu nú um helgina. Haddi minn er að útksirfast og ég er á fullu að setja saman smárétti sem mig langar að bjóða upp á. Ég gerði þessa vængi um daginn þegar Ísland – Tékkland mættust. Vængirnir slógu í gegn sem og gráðostasósan sem ég útbjó. Hér kemur uppskriftin, ég vona að þið njótið vel.
Buffaló vængir með gráðostasósu
15 – 20 kjúklingavængir
3 msk hveiti
1 tsk salt
1 tsk pipar
1 tsk paprikukrydd
2 – 3 msk Buffalo sósa
Aðferð:
- Setjið kjúklingavængi, hveiti og krydd í plastpoka og hrisstið duglega eða þannig að hveiti þekji kjúklingavængina mjög vel.
- Setjið vængina á pappírsklædda ofnplötu og bakið í ofni við 180°C í 50 – 55 mínútur. Snúið vængjunum nokkrum sinnum á meðan þeir eru í ofninum.
- Eftir þann tíma setjið þá sósu yfir vængina og setjið aftur inn í 2 -3 mínútur, eða þar til vængirnir eru stökkir og ljúffengir. Berið þá fram með gráðostasósu og sellerí.
Gráðostasósa
200 g sýrður rjómi 18% frá MS
3 msk majónes
safi úr hálfri sítrónu
100 g gráðostur
salt og nýmalaður pipar
Aðferð:
- Setjið allt í skál og maukið með töfrasprota eða setjið í matvinnsluvél. Maukið þar til sósan verður silkimjúk, kryddið til með salti og pipar.
Ég keypti tilbúna sósu og ég get svo sannarlega mælt með Guy sósunum, en þær fást í Hagkaup.
Góða helgi.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.