Brauðið sem allir elska

Það kannast flestir við þetta brauð en það kallast pottabrauð og er án efa einfaldasta brauð í heimi. Í gærkvöldi áður en ég fór að sofa blandaði ég nokkrum hráefnum saman og leyfði deiginu að lyfta sér yfir nótt, í morgun þurfti ég eingöngu að hnoða það örlítið og skella því inn í ofn. Ég hef áður deilt uppskriftinni með ykkur en mig langaði að deila henni enn og aftur. Ég bætti fersku rósmaríni og hvítlauk saman við deigið að þessu sinni og það kom afar vel út. Það er mikilvægt að nota steypujárnspott þegar þið bakið þetta brauð, útkoman verður ekki sú sama í öðrum formum. Ef þið eigið ekki steypujárnspott þá er tilvalið að skella honum á óskalista fyrir jólin, bestu pottarnir sem ég hef átt og ég nota þá mjög mikið bæði í bakstur og í matargerðinni.
Hér er uppskriftin og ég vona að þið njótið vel.

 

Pottabrauð með rósmarín og hvítlauk

  • 470 g brauðhveiti frá Kornax
  • 370 ml
    volgt vatn
  • 1 tsk salt
  • 1/4 tsk
    þurrger
  • 1 msk ferskt rósmarín
  • 2 hvítlauksrif
Aðferð:

 

  1. Blandið þurrefnum saman í skál og hrærið vatni saman við. Setjið
    plastfilmu yfir skálina og geymið við stofuhita í að minnsta kosti tólf
    klukkustundir.
  2. Hellið deiginu á hveitistráðborð og stráið smá hveiti yfir
    deigið. Saxið rósmarín og hvítlauk mjög smátt og blandið við deigið.
  3. Hnoðið deigið rétt aðeins í höndunum og brjótið það saman þannig að það myndi kúlu.
  4. Smyrjið ofnpott með olíu og setjið pottinn inn í ofn við 230°C.
  5. Takið pottinn út úr ofninum, setjið brauðið í pottinn og inn í ofn í 30
    mínútur. Þegar 30 mínútur eru liðnar takið þið lokið af pottinum og bakið áfram
    í 10 – 15 mínútur.

 

xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *