Súkkulaðidraumur

Súkkulaðibotnar

      • 3 bollar hveiti
      • 2 bollar sykur
      • 4 egg
      • 2 bollar AB mjólk
      • 1 bolli bragðlítil olía (ekki nota ólífuolíu)
      • 6 msk kakó
      • 2 tsk. Lyftiduft
      • 1 tsk. Matarsódi
      • 2 tsk. Vanilludropar

Aðferð:

      1. Hitið ofninn í 180°C (blástur).
      2. Blandið öllum hráefnum saman og hrærið í nokkrar mínútur eða þar til deigið er orðið silkimjúkt.
      3. Smyrjið tvö eða þrjú lausbotna form og skiptið deiginu niður í formin.
      4. Bakið við 180°C í 20 –22 mínútur. Tíminn fer auðvitað eftir ofnum, eins og alltaf. Gott er að athuga baksturinn
        með því að stinga prjóni í kökuna, prjóninn á að koma hreinn út og þá er kakan
        klár.
      5. Leyfið botnunum að kólna alveg áður en þið setjið á þá krem.

Klassískt og ómótstæðilegt smjörkrem.

      • 500 g smjör
      • 500 g flórsykur
      • 150 g suðusúkkulaði
      • 3 msk kakó
      • 1 msk uppáhellt kaffi (má sleppa)
      • 2 tsk vanilludropar
      • 1 eggjarauða

Aðferð:

      1. Þeytið saman smjör við stofuhita í 2-3 mínútur. Bætið flórsykrinum saman við og þeytið áfram í 3 mínútur. Munið að skafa meðfram hliðum einu sinni til tvisvar sinnum.
      2. Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði.
      3. Bætið vanilludropum og bræddu súkkulaði saman við og þeytið áfram í 2 mínútur.
      4. Gott er að setja kaffi en ef þið viljið ekki smá kaffibragð þá sleppið þið því.
      5. Bætið einni eggjarauðu saman við kremið í lokin og þeytið áfram í 2 mínútur.
      6. Smyrjið kremi jafnt á milli botnanna og þekjið kökuna svo með þessu gómsæta kremi.

Berið strax fram.

Njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *