Tryllingslega gott salat með fersku brokkólí, beikoni og granateplum.

  • Brokkolísalatið
  • 1 stórt höfuð brokkólí, hrátt
  • 2 dl fetaostur
  • 1 – 2 dl grískt jógúrt, magn eftir smekk
  • 150 g forsteikt beikon
  • Fræin úr einu granatepli
  • 150 g furuhnetur
  • ½ rauðlaukur
  • 1 hvítlauksrif
  • 3 msk hunang

Salt og pipar, magn eftir smekk

Aðferð:

  1. Setjið brokkólí (hrátt), rauðlauk, furuhnetur og hvítlauk í matvinnsluvél og maukið mjög fínt.
  2. Skerið beikon í litla bita, steikið og þerrið vel.
  3. Blandið því næst öllum hráefnum saman í skál og kryddið gjarnan með salti og pipar
  4. Best að kæla salatið í 30 – 60 mínútur áður en þið berið fram.

Njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *