Súkkulaðimúsin sem allir elska
- 25 g smjör
- 200 g suðusúkkulaði
- 250 ml rjómi
- 3 stk egg
- 2 msk sykuR
Aðferð:
- Bræðið smjör og súkkulaði saman við vægan hita í potti.
- Hellið súkkulaðinu síðan í skál, kælið og blandið þremur eggjarauðum saman við.
- Þeytið rjóma og að því loknu bætið súkkulaðiblöndunni saman við, í þremur pörtum. Leggið blönduna til hliðar.
- Stífþeytið eggjahvíturnar og bætið sykrinum smám saman við.
- Hrærið eggjahvítublöndunni mjög varlega saman við súkkulaðiblönduna með sleikju, setjið í glös eða skál. Kælið í lágmark 3 klst. Tilvalið að útbúa kvöldi áður.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.