Mexíkósk pizza með djúsí ostasósu á örfáum mínútum

Mexíkóskur matur er í sérstöku uppáhaldi hjá mér og fæ aldrei leið á þessum góða mat, möguleikarnir eru líka svo margir sem gerir þessa matargerð enn betri. Ég sá sérstakar pizza tortillur út í búð um daginn og var ekki lengi að grípa þær með mér ásamt öðru góðu hráefni. Ég útbjó mjög einfalda pizzu og það var frekar fínt að sleppa við að baka venjulegan pizzabotn, stundum er maður einfaldlega ekki í stuði fyrir mikið tilstand í eldhúsinu. Botninn var þunnur og stökkur en þannig finnst mér pizzabotnar bestir. Pizzan var einstaklega ljúffeng og þið ættuð að prófa þessa uppskrift.

 

Mexíkósk pizza
með kjúkling og djúsí ostasósu
  • 2 tortilla pizzakökur
  • 1 dós sýrður
    rjómi
  • 1 mexíkóostur,
    rifinn
  • salt og nýmalaður
    pipar
  • 500 – 600 g
    kjúklingakjöt t.d. úrbeinuð kjúklingalæri
  • 2 msk. Mexíkósk
    kryddblanda
  • 1 rauð paprika,
    smátt skorin
  • Salt og nýmalaður pipar
Tillögur að
áleggi; lárpera, salsa sósa, sýrður rjómi og smátt saxaður kóríander.
Aðferð:
  1. Leggið kjúklingalæri eða annað kjúklingakjöt í eldfast mót og kryddið til
    með bragðmikilli kryddblöndu. Eldið í ofni við 180°C í 20 mínútur. (fer
    auðvitað eftir þykktinni á kjúklingakjötinu)
  2. Á meðan kjúklingurinn er í ofninum blandið þið sýrða rjómanum og nýrifnum
    mexíkóosti  saman í skál og kryddið til
    með salti og pipar.
  3. Smyrjið tortillakökur með ostasósunni (ég keypti sérstakar pizza tortillur
    í Hagkaup, þær eru aðeins þykkari).
  4. Skerið papriku og kjúklingakjöt í litla bita og dreifið yfir ostasósuna.
  5. Bakið í ofni við 180°C í ca. 5 – 7 mínútur. Þegar pizzan er tilbúin er gott
    að skera niður avókadó, tómata, ferskt kóríander og dreifa yfir. Einnig finnst
    mér algjört æði að mylja niður Nachos flögur og sáldra yfir. Einföld og stórgóð
    máltíð sem öllum í fjölskyldunni þykir góð.

 

 

Mæli svo sannarlega með að þið prófið þessa, hún er mjöööög góð.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *