Heimagert pestó og ljúffengur kjúklingaréttur.

Fyrir rúmlega ári steig ég mín fyrstu skref í sjónvarpi í þáttunum Í eldhúsinu hennar Evu sem sýndir voru á Stöð 3. Það var ákaflega skemmtileg og dýrmæt reynsla, í þáttunum lagði ég ríka áherslu á heimilismat sem allir ættu að geta leikið eftir. Ég er búin að uppfæra uppskriftalistann hér á blogginu og nú getið þið nálgast allar uppskriftir sem voru í þættinum hér á vefnum. Það gleður mig einnig að segja frá því að þættirnir eru nú aðgengilegir á vísi.is. Þið finnið þættina hér undir matur.
Í dag ætla ég að deila með ykkur uppskrift að heimagerðu pestó og ljúffengum kjúklingarétt sem er í miklu eftirlæti hjá mér.
Rautt og gómsætt pestó
  • 200 g sólþurrkaðir tómatar
  • 90 g furuhnetur
  • 2 hvítlauksrif
  • 150 g ferskur rifinn Parmesan ostur
  • salt og nýmalaður pipar
  • 1 – 2 dl góð ólífuolía

 

Aðferð: Blandið öllu saman í matvinnsluvél í nokkrar
mínútur. Áferðin á pestóinu fer eftir því hversu mikið af olíu þið notið. Það
er ágætt að setja olíuna saman við pestóið smám saman.
Kjúklingabringur í pestói
  • 4 – 5 kjúklingabringur
  • Salt og nýmalaður pipar
  • 1 uppskrift rautt pestó
  • 1 krukka fetaostur + olían í krukkunni

 

Aðferð: Hitið ofninn í 200°C. Leggið kjúklingakjötið í
eldfast mót, það er ágætt að skera bringurnar í tvennt. Kryddið kjúklingakjötið
til með salti og pipar.  Blandið pestóinu
og fetaostinum saman í skál, það er gott að blanda ostinum saman við pestóið
með gaffli. Hellið sósunni yfir kjúklinginn og inn í ofn í 35 – 40 mínútur. Berið kjúklingaréttinn fram með góðu pasta eða hrísgrjónum
og fersku salati.
 Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *