Grillaður lax með sítrónu, fetaosti, hvítlauk og kirsuberjatómötum

Grillaður lax með sítrónu, kirsuberjatómötum og hvítlauk

  • 700 g lax, beinhreinsaður
  • 1 msk ólífuolía
  • salt og pipar
  • 1 hvítlauksrif
  • 10 kirsuberjatómatar
  • sítróna
  • 1 ½ dl fetaostur
  • 1 msk graslaukur, smátt saxaður

Aðferð:

Skerið laxinn í jafn stóra bita og raðið honum í álbakka eða á álpappír, dreifið olíu yfir laxinn og kryddið með salti og pipar. Rífið niður eitt hvítlauksrif, skerið niður tómata og graslauk og dreifið yfir laxinn. Skerið sítrónu í sneiðar og leggið eina sneið yfir hvern bita ásamt því að mylja fetaost yfir í lokin. Grillið í 5 – 7 mínútur eða þar til fiskurinn er eldaður í gegn.

Grillaður aspas

  • Ferskur aspas
  • Ólífuolía
  • Sítrónusafi
  • Salt og pipar
  • Smjör

Aðferð:

Snyrtið aspasinn vel og skerið trénaða hlutann af, það er gott ráð að beygja aspasinn og sjá hvar hann brotnar, það er semsagt trénaði hlutinn sem við viljum losna við. Sáldrið ólífuolíu yfir aspasinn ásamt sítrónusafa, kryddið til með salti og pipar. Grillið aspasinn í örfáar mínútur og um leið og hann er tilbúinn þá er hann tekinn af grillinu og blandaður saman við smá smjörklípu. Það er einnig æðislegt að rífa niður ferskann parmesan og bera fram með grilluðum aspas.

Létt og góð grillsósa

  • 2 dl majónes
  • 180 g sýrður rjómi
  • 1 hvítlauksrif
  • safi úr hálfri sítrónu
  • 1 tsk hunang
  • 1 msk smátt saxaður graslaukur
  • ¼ tsk sítrónupipar
  • salt og pipar

Aðferð: Blandið öllum hráefnum saman í skál eða notið matvinnsluvél til þess að fá enn fínni útgáfu að sósunni. Það er afar gott að kæla sósuna aðeins áður en hún er borin fram.

Njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *