Einfalt og gott pastasalat
- 2 kjúklingabringur eldaðar, eða álíka mikið magn af öðru kjúklingakjöti
- 300 g penne pasta
- 1 krukka gott pestó
- 8 – 10 sólþurrkaðir tómatar
- 1 dl fetaostur
- ristaðar furuhnetur, magn eftir smekk
- góð jómfrúarolía
- nýrifin parmesan ostur
- 1 poki klettasalat
Aðferð:
- Sjóðið pasta í söltu vatni samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum.
- Skerið niður kjúklingakjöt, sólþurrkaða tómata og klettasalat.
- Blandið öllu saman í skál, hellið pestóinu saman við og hrærið vel.
- Ristið furuhnetur á pönnu og rífið niður parmesan, sáldrið yfir pastaréttinn áður en þið berið fram og njótið!
*Gott að geyma í ísskáp, smakkast vel bæði heitt og kalt!
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.