Nutella pönnukökur

Ég elska, elska, elska amerískar pönnukökur með allskyns góðgæti og þessar einföldu pönnukökur með Nutella eru algjört sælgæti. Ég bakaði þessar í gær, jájá konur sem eru komnar 38 vikur á leið þurfa ekki að afsaka pönnukökubakstur í virkum dögum 😉 Ég fékk allt í einu löngun í pönnukökur og var ekki lengi að skella í þessar enda er uppskriftin afar einföld og fljótleg… sem er alltaf plús og ég verð að mæla með að þið prófið þessar sem allra fyrst.

Nutella pönnukökur

  • 260 g hveiti
  • 2 tsk lyftiduft
  • salt á hnífsoddi
  • 3 msk sykur
  • 2 tsk vanilla
  • 2 egg
  • 4 msk smjör, brætt
  • 250 ml mjólk
  • Nutella, magn eftir smekk

Aðferð:

  1. Blandið þurrefnum saman í skál.
  2. Pískið eggin saman við mjólk og vanilludropa.
  3. Bræðið smjör á pönnu og blandið saman við þurrefnin ásamt mjólkinni og vanillu.
  4. Hrærið vel í deiginu þar til það er orðið silkimjúkt.
  5. Hitið smá smjör á pönnu og setjið góða skeið af deigi á pönnuna, setjið því næst smávegis af Nutella ofan á og svo aðeins meira deig yfir.
  6. Steikið pönnukökuna í ca.mínútu á hvorri hlið eða þar til hún er orðin gullinbrún.
  7. Berið strax fram með smjöri, Nutella, ferskum berjum og smá sírópi.. jájá allt er nú leyfilegt á laugardögum.

Njótið vel og góða helgi.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *