Ofnbökuð sítrónuostakaka borin fram með ferskum berjum

Ofnbökuð sítrónuostakaka borin fram með ferskum berjum

Kexbotn

  • 400 g kexkökur til dæmis Digestive
  • 120 g smjör
  • 1 tsk sykur

Aðferð:

Setjið kexið í matvinnsluvél og maukið, bræðið smjör og hellið því í matvinnsluvélina ásamt einni teskeið af sykri og maukið enn betur saman. Hellið blöndunni í hringlaga smelluform.

Ostafylling

  • 900 g hreinn rjómaostur, við stofuhita
  • 170 g sykur
  • 250 g sýrður rjómi
  • 2 egg
  • 2 tsk vanilludropar – eða sykur
  • fræin úr einni vanillustöng
  • ½ dl nýrifinn sítrónubörkur

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 200°C.
  2. Þeytið rjómaost og sykur saman þar til osturinn verður léttur og mjúkur, bætið sýrða rjómanum við og þeytið vel. Bætið því næst eggjum, sítróog vanillu saman við og þeytið áfram þar til deigið er orðið silkimjúkt.
  3. Hellið fyllingunni yfir kexbotninn og vefjið tvöföldu lagi af álpappír meðfram forminu, með því ætti kakan ekki að springa en ostakökur geta verið svolítið viðkvæmar.
  4. Bakið kökuna við 200°C í 45 – 50 mínútur. Leyfið kökunni að kólna í ofninum í um það bil klukkustund, hún er mjög hlaupkennd þegar til takið hana út úr ofninum en hafið ekki áhyggjur hún á einmitt að líta þannig út. Geymið kökuna í kæli í nokkrar klukkustundir áður en þið berið hana fram, best yfir nótt
  5. Sáldrið flórsykri yfir kökuna áður en þið berið hana fram ásamt ferskum berjum.

Njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *