Í síðasta þætti af Matargleði útbjó ég þetta tryllingslega góða karamellupæ sem er bæði fáránlega einfalt og fljótlegt. Ég kaupi yfirleitt karamellusósuna tilbúna í krukku en sósan fæst meðal annars í Hagkaup. Einnig er hægt að sjóða sæta niðursoðna mjólk í 2 – 3 klst en mjólkin breytist í ljúffenga karamellusósu. Þegar þið hafið ekki þessar 2 – 3 klst þá er í góðu lagi að kaupa hana tilbúna.. ég segi ykkur það satt. Ég elska að eiga nokkrar uppskriftir sem eru það einfaldar að ég get skellt í eina köku hvenær og hvar sem er. Ég mæli hiklaust með að þið prófið þessa um helgina, hún er æði. Var ég búin að segja æði? Ok. Nú er ég hætt.
Karamellupæ með þeyttum rjóma og dökku súkkulaði
Botn:
- 250
g Digestive kexkökur - 150 g smjör
- 2 tsk sykur
- 50 g súkkulaði
Fylling:
- 2 krukkur Dulce de leche karamellusósa (ca. 500 – 600 g samanlagt)
- 2 bananar
- 200 ml rjómi
- 1 tsk vanillusykur
- 50 g súkkulaði
Aðferð:
- Setjið kex, smjör, sykur og súkkulaði í matvinnsluvél. Hellið blöndunni í
hringlaga form helst lausbotna og þrýstið kexblöndunni í formið og upp með
hliðum á forminu. - Kælið botninn í hálftíma áður en þið setjið fyllinguna í hann.
- Fyllið botninn með karamellunni, skerið banana í sneiðar og raðið þeim yfir
karamelluna. Þeytið rjóma með smá vanillusykri og dreifið yfir pæið. - Saxið dökkt súkkulaði og sáldrið yfir. Kælið pæið mjög vel áður en þið
berið það fram.
Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld á Stöð 2.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.