Karrífiskur með æðislegri jógúrtsósu
*Fyrir fjóra
- 800 g fiskur til dæmis þorskur eða ýsa
- 5 dl hveiti
- salt og pipar
- 1 msk karrí
- 1 msk sinnepsduft
- 2 msk fersk smátt söxuð steinselja
- salt og nýmalaður pipar, magn eftir smekk
- 3 egg
- ólífuolía til steikingar + smá smjör
Aðferð:
- Skerið fiskinn í jafn stóra bita.
- Blandið saman í skál hveitinu og kryddum.
- Pískið þrjú egg saman í skál.
- Hitið ólífuolíu á pönnu.
- Veltið fiskbitunum upp úr hveitiblöndunni og síðan upp úr eggjablöndunni.
- Steikið fiskinn á pönnu í ca tvær mínútur á hvorri hlið, setjið síðan fiskinn í eldfast mót og inn í ofn við 180°C í 10 – 12 mínútur. Það er ágætt að setja smá smjörklípu ofan á fiskinn áður en hann fer inn í ofn.
Á meðan fiskurinn er í ofninum er brjálæðislega góð og einföld jógúrtsósan útbúin…
Jógúrtsósa
- 300 ml grísk jógúrt
- safi úr 1/2 límónu
- 2 msk fersk steinselja, smátt söxuð
- 1 hvítlauksrif, pressað
- 1 tsk hunang
- salt og pipar
Aðferð:
- Setjið öll hráefnin saman í skál og blandið vel saman, það er einnig gott að mauka sósuna í matvinnsluvél eða með töfrasprota. Berið strax fram!
Fljótlegt, einfalt og gott!
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.