*Þessi færsla er kostuð og unnin í samstarfi við AVA aldinvatn
Jól í glasi er nafnið á þessum kokteil, hann er einfaldlega svo jólalegur að þetta nafn smellpassar. Ég elska desember og allt sem honum fylgir, jólaboð og hittingar með vinum og fjölskyldu.. svo ekki sé minnst á spilakvöldin! Það er ferlega skemmtilegt að bjóða upp á góða kokteila í boðum og þessi er tilvalin. Einfaldur og bragðgóður… borin fram með stökkum og guðdómlega góðum parmesanflögum sem þið verðið að prófa.
Berja moijto með jólaívafi
Uppskrift fyrir 2 glös
- 2 límónur
- handfylli mintulauf
- 8 tsk hrásykur
- 8 cl ljóst romm (auðvitað má sleppa áfenginu)
- handfylli hindber
- mulinn klaki
- Sódavatn
- rósmarín, til skreytingar
- kanilstöng, til skreytingar
- 1 tsk flórsykur
Aðferð:
- Skerið límónu í báta og skiptið niður í tvö glös.
- Skiptið sömuleiðis mintulaufum, hrásykri, rommi og hindberjum í glösin, merjið allt saman.
- Setjið mulinn klaka í glösin, allt upp að brún og hrærið vel í.
- Fyllið upp með sódavatni og skreytið drykkinn með rósmaríngrein, rífið niður smá kanil af kanilstönginni og sigtið flórsykur yfir drykkinn í lokin.
Berið strax fram og njótið vel.
Parmesanflögur með rósmarín
- 100 g parmesan
- 1/2 tsk rósmarín
- svartur pipar
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200°C.
- Rífið niður parmesan.
- Skiptið ostinum niður í nokkra bita á pappírsklæddri ofnplötu, mótið hring.
- Sáldrið rósmarín yfir hvern hring.
- Kryddið með smá pipar og bakið í ofni við 200°C í 3 – 4 mínútur.
- Kælið og berið fram.
Stökkar og dásamlegar parmesanflögur.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.