Hráefni
- 600 g hveiti
- 1 msk hunang
- 12 g þurrger
- 5 dl volgt vatn
- 1/2 tsk salt
- 1 dl olífuolía
Ofan á:
- 1 dl ólífuolía
- 1 msk. smátt saxað rósmarín
- 1 dl fetaostur, mulin
- 12-14 grænar ólífur
Aðferð:
- Blandið volgu vatni, þurrgeri og hunangi saman í skál. Hrærið vel í blöndunni og látið standa í nokkrar mínútur eða þar til það byrjar að freyða í skálinni.
- Blandið öllum hráefnum saman í hrærivélaskál og hnoðið deigið vel eða þar til deigið er slétt og sprungulaust.
- Látið deigið hefast undir viskastykki þar til það hefur tvöfaldast að stærð eða í um það bil 35-40 mínútur.
- Hitið ofninn í 200°C (blástur).
- Smyrjið því næst ofnskúffu með ólífuolíu, setjið deigið í skúffuna og þrýstið því jafnt út í alla kanta.
- Saxið rósmarín og blandið við ólífuolíu. Smyrjið deigið vel með olíunni og sáldrið sjávarsalti yfir. Myljið fetaostinn yfir og stingið nokkrum ólífum í deigið.
- Bakið brauðið við 200°C í 20 mínútur eða þar til brauðið er orðið gullinbrúnt.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir