Vikumatseðill

Mér finnst best að byrja vikuna á góðum fisk, þessi karrífiskur er mjög einfaldur og bragðgóður. Fiskurinn er borinn fram með jógúrtsósu og fersku salati. 

Þriðjudagsrétturinn þessa vikuna er ofurgott Japanskt salat með stökkum núðlum. 
Fimmtudagsrétturinn er fiskréttur í betri kantinum, lax í ljúffengri sósu með sólþurrkuðum tómötum og döðlum. 
Föstudagsrétturinn er á mexíkósku nótunum, takkógratín með ómótstæðilegu lárperumauki. 
Það spáir góðu veðri út vikuna og þá er að sjálfsögðu tilvalið að grilla um helgina og ég mæli með þessum beikon-kjúklingaspjótum með piparostasósu. Algjört lostæti!

Bakstur vikunnar er þetta heilhveitibrauð sem er bæði svakalega gott og stútfullt af hollustu, mér þykir þetta brauð ótrúlega gott og ég mæli með að þið prófið það. 
Ég vona að þið eigið góða viku framundan. 
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Endilega deildu með vinum :)

3 comments

  • Langar að vita hvort það eigi virkilega að vera 3 dl af vatni, brauðið varð svo klesst og blautt hjá mér þannig að ég fór að spá í hvort það ætti að vera 1 dl af vatni í staðinn fyrir 3 ?

Leave a Reply to Anonymous - Cancel Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *