Tacos með hægelduðu svínakjöti og bragðmikilli sósu

Tacos með hægelduðu svínakjöti og bragðmikilli sósu

Fyrir 2 – 3

Hráefni:

• 600 g úrbeinaður svínahnakki
• 1 msk ólífuolía
• 1 laukur
• 2 hvítlauksrif
• ½ rauður chili
• Salt og pipar
• Handfylli kóríander
• 2 tsk paprika
• 2 tsk allrahandakrydd
• 1 tsk cumin
• 330 ml bjór
• 2 dl soðið vatn

Aðferð:
1. Forhitið ofninn í 160°C (blástur)
2. Hitið olíu í potti sem þolir að fara inn í ofn (helst með loki).
3. Steikið kjötið upp úr olíunni og kryddið með þeim kryddum sem talin eru upp hér að ofan, bætið lauk, hvítlauk og chil ií pottinn og steikið vel í 2 – 3 mínútur.
4. Hellið bjórnum saman við og látið sjóða í 2 mínútur. Bætið kóríander út í lokin!
5. Setjið lokið á pottinn og inn í ofn við 160°C í 4 – 6 klukkustundir. !Mjög sniðugt að gera degi áður en þið ætlið að nota kjötið.
6. Þegar kjötið er tilbúið er gott að bæta við 2 dl af soðnu vatni saman við og hræra vel upp í kjötinu, rífið það í sundur og smakkið til hvort þið viljið meira salt eða pipar.
7. Geymið kjötið til hliðar á meðan þið útbúið einfalt meðlæti.

Meðlæti.

• Chipotle sósa, uppskrift hér að neðan
• Tortilla vefjur
• Rauðkál
• Límóna
• Kóríander
• Jalepeno
• Hreinn fetaostur

Aðferð:
1. Hitið tortillavefjur á pönnu.
2. Saxið rauðkál, saltið smávegis og kreistið límónusafa yfir.
3. Setjið rauðkál, svínakjöt, kóríander, fetaost og jalepeno

Chipotle sósan ljúfa

• 4 msk sýrður rjómi
• 1 – 2 tsk chipotle mauk
• Salt og pipar, magn eftir smekk
• Safi úr hálfri límónu

Aðferð:

1. Setjið öll hráefnin saman í skál og blandið vel, smakkið ykkur til með maukinu. Byrjið á því að setja lítið og bætið frekar í ef þið viljið hafa sósuna bragðmeiri.
2. Geymið í kæli þar til þið berið hana fram.

 

Taco tuesday er alla þriðjudaga á Instagramminu mínu  – finnið mig undir evalaufeykjaran.

Njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *