Taco tuesday – Kjúklingalæri á stökkri tortillavefju

Taco tuesdays eða þriðjudagar undir mexíkóskum áhrifum eru komnir til þess að vera á Instastory hjá mér. Á hverjum þriðjudag ætla ég að deila með ykkur uppskrift að einföldum og bragðgóðum uppskriftum sem eiga það sameiginlegt að vera á mexíkósku nótunum. Ég vona að þið eigið eftir að fylgjast með næstu þriðjudaga. Hér er uppskriftin frá því í síðustu viku og þá útbjó ég ljúffeng kjúklingalæri á stökkri tortillavefju með fersku salsa.

Bragðmikil kjúklingalæri á stökkri tortillavefju

Uppskrift miðast við fjóra

  • 800 g kjúklingalæri, beinhreinsuð
  • 2 msk ólífuolía
  • 1/2 límónu, börkur og safi
  • 2 tsk paprikuduft
  • 1 tsk kummin
  • 1 tsk kjúklingakrydd
  • 1 tsk allrahandakrydd
  • Salt og pipar
  • 1 rauð paprika
  • 1 laukur
  • Tortillavefjur
  • Ferskt salsa, uppskrift hér að neðan
  • Hreinn fetaostur
  • Kóríander

Aðferð:

  1. Forhitið ofninn í 200°C (blástur).
  2. Setjið kjúklingakjötið í skál ásamt ólífuolíu og þeim kryddum sem talin eru upp hér að ofan. Kreistið safann úr límónu yfir og rífið börkinn sömuleiðis yfir. Gott er að leyfa kjúklingakjötinu að liggja í marineringunni í svolitla stund í kæliskáp ef þið hafið tíma.
  3. Leggið kjúklinginn í eldfast mót, skerið papriku og lauk og dreifið yfir kjúklingakjötið. Setjið réttinn inn í ofn við 200°C í 25 mínútur.
  4. Berið kjúklinginn fram með stökkri tortillavefju sem þið steikið upp úr olíu, fersku salsa, hreinum fetaosti og smátt söxuðum kóríander.

Ferskt salsa

  • 2 tómatar, kjarnhreinsaðir
  • 1/2 laukur
  • 1 lárpera
  • 1/4 tsk chili
  • Salt og pipar
  • 1 msk ólífuolía
  • 1/2 límóna

Aðferð:

  1. Saxið tómata, lauk og lárperu smátt og setjið í skál.
  2. Saxið chili mjög smátt og bætið út í ásamt ólífuolíu og límónusafa.
  3. Kryddið til með salti og pipar.
  4. Geymið í kæli þar til þið berið það fram.

Súper einföld og góð uppskrift sem ég mæli með að þið prófið.

Njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum  Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *