Súper einfaldar bláberjabollakökur

Í þætti kvöldsins lagði ég sérstaka áherslu á brönsrétti og bakaði meðal annars þessar súper einföldu og bragðgóðu bláberjabollakökur. Það tekur enga stund að skella í þessar og þær eru algjört æði með morgunkaffinu. Þið getið bæði notað fersk eða frosin ber, það skiptir ekki öllu máli.

Bláberjabollakökur af einföldustu gerð

12 – 14 bollakökur
  • 8 msk smjör, brætt
  • 150 ml mjólk
  • 2 egg
  • 300 g hveiti
  • 120 g sykur
  • 1 tsk vanilla
  • 2 tsk lyftiduft
  • 2 – 2 ½ bolli bláber, fersk eða frosin
Haframjölsmulningur
  • 50 g hveiti
  • 35 g smjör
  • 25 g haframjöl
  • 30 g púðursykur

 

Aðferð: Setjið allt saman í skál og blandið þessu vel saman með höndunum, þar til þetta verður að fíngerðu deigi
Bollakökudeigið:
Aðferð:
  1. Stillið ofninn í 180°C.
  2. Hrærið saman eggjum,
    bræddu smjöri, mjólk og vanillu.
  3. Hellið blöndunni við þurrefnin og blandið vel
    saman.
  4. Veltið bláberjum upp úr svolitlu hveiti og hrærið þeim saman við deigið
    með sleif.
  5. Skiptið deiginu jafnt niður í bollakökuform og setjið eina matskeið
    af haframjölsblöndunni yfir.
  6. Bakið kökurnar við 180°C í 18 – 22 mínútur.
Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld klukkan 19:25 á Stöð 2.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefni sem notuð voru í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

 

Endilega deildu með vinum :)

2 comments

Leave a Reply to Eva Laufey Kjaran - Cancel Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *