Ljúffengur lax í sítrónusósu.

Lax er í algjöru eftirlæti
hjá mér, það er gaman að matreiða lax og möguleikarnir eru endalausir. Ég bauð
stórfjölskyldunni upp á dýrindis fiskrétt í gærkvöldi og þau voru öll afar sæl
með matinn. Það er nú bara þannig að stundum hefur maður ekki mikinn tíma til
þess að stússast í eldhúsinu og þá er gott að geta farið smá flýtileið, ég
prófaði að elda laxinn upp úr ljúffengri sítrónusósu sem ég keypti tilbúna og
mig langar að segja ykkur aðeins meira frá þessum sósum.


Simply Add Fish sósurnar eru nýjung á Íslandi. Sósurnar koma
með þremur bragðtegundum og eru án allra aukaefna, sem er lykilatriði að mínu
mati. Bragðtegundirnar eru Creamy Herb, Touch of Tomato og Lovely Lemon. Ég get
sagt ykkur það að sósurnar komu mér mikið á óvart. Ég eldaði laxinn upp úr
Lovey Lemon sósunni og fiskurinn var silkimjúkur og mjög bragðgóður.


Þetta er fullkomið þegar tíminn er af skornum skammti eða
bara þegar ykkur langar í góðan fiskrétt. Það er þess virði að fara flýtileiðir
ef útkoman er gómsæt. Á meðan að fiskurinn var í ofninum þá útbjó ég ofnbakaðar
kartöflur og grænmeti. Ég mæli hiklaust með að þið prófið þessar sósur, ég lofa
ykkur því að þið verðið ekki vonsvikin.

Ljúffengur lax í sítrónusósu
  • 1 kg lax, beinlaus
  • Salt og nýmalaður pipar
  • 2 pokar Lovely Lemon fiskisósa
  • Ferskt dill, magn eftir smekk

Aðferð: Skolið og hreinsið fiskinn vel áður en þið leggið
hann í edfast mót. Það er líka ágætt að skera fiskinn í nokkra bita og
snöggsteikja á pönnu. Leggið fiskinn í eldfast mót, kryddið til með salti og
pipar og hellið sósunni yfir. Einn poki ætti að duga en við fjölskyldan erum
mikið fyrir sósur og þá var fínt að nota 2 poka. Setjið fiskinn inn í ofn við
180°C í 25 – 30 mínútur. Þegar fiskurinn er tilbúinn þá er gott að saxa niður
ferskt dill og dreifa yfir.

 Bakaðar karöflur, gulrætur og fennel með fersku dilli.
  • 3 stórar bökunarkartöflur
  • 1 stór sæt kartafla
  • 3 – 4 gulrætur
  • 1 meðalstór fennelbelgur
  • Salt og nýmalaður pipar
  • 2 – 3 msk ólífuolía
  • Sítrónusafi
  • Ferskt dill, smátt saxað

Aðferð: Afhýðið
grænmetið og skerið smátt. Skerið endana af
fennelbelgjunum og rífið af ystu blöðin ef þau eru ekki falleg. Skerið síðan í
tvennt á lengdina og skerið síðan niður litla bita. Setjið
grænmetið í eldfast mót og hellið vel af olíu yfir, kryddið til með salti og
pipar og blandið öllu vel saman. Bakið við 180°C í 40 – 45 mínútur. Þegar
grænmetið er tilbúið þá kreistið þið safann úr ½ sítrónu yfir og blandið dilli
saman við. Berið fram með fiskréttum, algjört sælgæti. 

Njótið vel. 
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Endilega deildu með vinum :)

2 comments

Leave a Reply to Eva Laufey Kjaran - Cancel Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *