Heimabakað brauð með gómsætum fyllingum

Þetta brauð er mikilu eftirlæti hjá mér en mamma mín bakaði það mjög oft þegar ég var yngri. Það er fullkomið eitt og sér eða með öðrum aðalréttum t.d. góðum súpum. Þið getið auðvitað fyllt brauðið með því sem að ykkur lystir en hér eru tvær tillögur að fyllingum sem ég mæli með. 
Gómsæt fyllt brauð
240 ml volgt
vatn (mikilvægt að vatnið sé volgt)
2 ½ tsk þurrger
1 msk hunang
400 – 450 g
hveiti 
1
tsk salt 
2
msk olía 
Aðferð:
Blandið volgu
vatni, geri og hunangi saman í skál. Leggið viskastykki yfir skálina og leyfið
gerinu að leysast upp í rólegheitum, eða í 5 – 6 mínútur. Um leið og það byrjar
að freyða í skálinni þá er gerblandan tilbúin. Hellið gerblöndunni í
hrærivélaskál og bætið öllum hráefnum saman við, það er góð regla að bæta
hveitinu smám saman við. Látið deigið hnoðast í vélinni í 6 – 10 mínútur eða
þar til deigið er orðið í laginu eins og kúla. Setjið viskastykki yfir
hrærivélaskálina og leyfið deiginu að hefast í klukkustund eða þar til þar
hefur tvöfaldast að stærð.
Skiptið deiginu
í tvo hluta og stráið hveiti á borðið og fletjið það út. Fyllið með góðu
hráefni og hér fyrir neðan eru tvær tillögur að fyllingum.
Fyllingar:
2 dl olía
2 hvítlauksrif
salt
ólífur
sólþurrkaðir
tómatar
hægeldaður
kúrbítur
hægeldaðir
tómatar
rifinn ostur
2 dl olía
2 hvítlauksrif
salt
1 msk tómatpúrra
1 bréf skinka
með pestó
1 góður
hvítmygluostur
oreganó
rifinn ostur
Aðferð:
Hitið ofninn í
180°C. Leggið deigið á pappírsklædda bökunarplötu. Búið til hvítlauksolíu með
því að blanda olíu og hvítlauk saman ásamt smá salti. Bætið tómatpúrru út í við
ef þið viljið tómat- og hvítlauksolíu. Skerið hráefnið niður og fyllið brauðin.
Setjið rifinn ost yfir og lokið brauðinu. Penslið smá olíu ofan á brauðið og ég
mæli með að þið dreifið smá osti yfir í loki. Bakið brauðin við 180°C í 10 – 12
mínútur eða þar til það er orðið gullinbrúnt.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *