GRILLAÐUR MAÍS – BESTA MEÐLÆTIÐ FYRR OG SÍÐAR.

Það stytti upp í korter í vikunni og þá var tilefni til þess að grilla, mig langar að skrifa langloku um veðrið og röfla en ég er að reyna að halda röflinu í lágmarki. Ég er samt orðin svo súr á þessu, en jæja.. ég ætla að tala um góðan mat sem gleður! Ég grillaði maís í fyrsta sinn og ég skil raunverulega ekkert í sjálfri mér að hafa ekki prófað það fyrr, þetta var guðdómlega gott. Stökkur maís í hvítlaukssmjöri með fetaosti, radísum, ferskum kryddjurtum og límónusafa… namm!! Þið verðið hreinlega að prófa, ég lofa að þið eigið eftir að gera þetta aftur og aftur.

Grillaður maís í hvítlaukssmjöri

  • 2 ferskir maísstönglar í hýðinu
  • Salt og pipar
  • Chipotle parmesan krydd
  • 50 g smjör
  • 1 hvítlauksrif
  • Basilíka eða kóríander
  • Radísur
  • Fetaostur
  • 1 Límóna

Aðferð:

  1. Flettið hýðinu á maísnum niður og látið stönglana liggja í köldu vatni í um það bil 15 mínútur.
  2. Þerrið maísinn og kryddið með salti, pipar og Chipotle Parmesan kryddinu.
  3. Setjið smávegis af olíu í pott, saxið niður hvítlauksrif og létt steikið. Bætið smjörinu út í pottinn og bræðið. Hellið smjörinu yfir maísinn og veltið stönglunum vel upp úr smjörinu.
  4. Grillið í 15-20 mínútur.
  5. Berið fram með fetaosti, enn meira smjöri, smátt skornum radísum og ferskum kryddjurtum til dæmis basilíku eða kóríander. Kreistið einnig límónusafa yfir rétt áður en þið berið fram!

Njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *