Bragðmikil kjúklingasúpa með eplum, karrí og kókosmjólk.

Ég fór út í matarbúð til þess að kaupa mér hráefni til að útbúa bruschettu með tómötum-og basiliku. En þegar að ég kom í búðina þá var lítið úrval af ferskum kryddjurtum og mér fannst ómögulegt að fara að gera bruschettu án þess að hafa ferska basiliku svo ég þurfti að koma með hugmynd að öðrum rétti til þess að hafa í kvöldmatinn. Þá datt mér í hug súpa sem vinkona mín hefur verið að tala mikið um við mig, já ég og Agla vinkona tölum nærri því eingöngu um mat. Mér þótti þessi súpa einstaklega heillandi og ég mundi svona hér um bil hvaða hráefni áttu að fara út í súpuna. Þá var málið leyst, ég ákvað að hafa súpuna í matinn og sé svo sannarlega ekki eftir því. 
Bragðlaukarnir fá svo sannarlega að njóta sín því súpan er einstaklega bragðmikil og ljúffeng. 
Ég mæli svo sannarlega með að þið prufið þessa uppskrift, súpan á einstaklega vel við á köldu vetrarkvöldi. Það er fátt betra en að gæða sér á ljúffengri súpu á meðan að veðrið er fremur leiðinlegt. 
Bragðmikil kjúklingasúpa með eplum, karrí og kókosmjólk. 
Fyrir 4 – 5.
 2 msk olía
 2 – 2,5 l
vatn          
1 laukur,
smátt saxaður
2
hvítlauksrif, smátt söxuð
1 msk ferskt
engifer, rifið niður með rifjárni
1 grænt epli,
skorið í litla bita
3 – 4
gulrætur, smátt skornar
6 – 7 stilkar mini-maís, skornir í grófa bita
2 – 3
kjúklingabringur
3 – 4 tsk
karrí
4 msk
rjómaostur
1 tsk
kjúklingakrydd
2
kjúklingateningar
1 dós
kókosmjólk
3 tsk
tómatpúrra
Salt og pipar,
magn eftir smekk
Hitið olíu í
potti við vægan hita, steikið laukinn og hvítlaukinn í smá stund. Bætið næst
gulrótum, eplabitum og engifer saman við. Kryddið til með salti, pipar og
karrí. Hellið vatni saman við og bætið tómatpúrru og kjúklingateningum út í,
suðan látin koma upp og súpan látin malla í 10 mínútur. Hitið olíu á pönnu við
vægan hita og skerið kjúklingabringurnar í litla bita, steikið kjúklinginn í
örfáar mínútur og kryddið til með kjúklingakryddi og ef til vill smá karrí.
Bætið kjúklingabitum, kókosmjólk og rjómaosti saman út í súpuna og leyfið henni
að ná suðu, leyfið henni að malla þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.
Persónulega finnst mér best að leyfa súpunni að malla við vægan hita í
svolítinn tíma en látið hana þó malla í lágmark 30 mínútur.  Smakkið ykkur til með salti, pipar og karrí.
Berið súpuna
fram með sýrðum rjóma og ef til vill söxuðu klettasalati eða kóríander, það
gefur súpunni einstaklega gott bragð. 
Ég passa mig alltaf á því að gera nóg af súpunni svo ég eigi örugglega súpu daginn eftir því að mínu mati eru súpur alltaf bestar daginn eftir. 
Ég vona að þið eigið reglulega huggulegt kvöld framundan kæru vinir. 
xxx
Eva Laufey Kjaran

Endilega deildu með vinum :)

2 comments

Leave a Reply to Anonymous - Cancel Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *