Besta eplakakan

Það eru nokkrar kökur sem ég baka aftur og
aftur, það er súkkulaðikaka, gulrótarkaka og svo þessi eplakaka. Kökur sem ég
fæ aldrei leið á og minna mig á ljúfar stundir með fjölskyldu og vinum. Þessi
eplakaka yljar manni að innan og kanililmurinn er hreint út sagt dásamlegur.
Eplakaka með þeyttum rjóma
  • 200 g smjör
  • 3 egg
  • 220 g hveiti
  • 220 g sykur
  • 1 tsk lyftiduft
  • 2 tsk vanilla extract eða sykur
  • 1 dl rjómi
  • 2 græn epli
  • 2 msk sykur
  • 1,5 tsk kanill

 

Aðferð:
  1. Flysjið eplin, kjarnhreinsið og skerið í sneiðar. Blandið
    saman 2 msk af sykri og 1 tsk af kanil, sáldrið yfir eplin og leyfið þeim að
    liggja í kanilsykrinum í svolitla stund.
  2. Hrærið saman smjör og sykur þar til blandan verður létt
    og ljós, bætið eggjum saman við einu í einu.
  3. Blandið þurrefnum saman og bætið saman við eggjablönduna.
    Hellið rjómanum saman við ásamt vanillu.
  4. Smyrjið hringlaga kökuform og hellið deiginu í formið,
    raðið eplunum ofan á og bakið við 180°C í 40 – 45 mínútur.
  5. Berið fram með þeyttum rjóma eða ís.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

 

 

Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)